
Vuugisarrus Murfor® Compact-A
Murfor® Compact-A fúgustyrking er et ofið stálnet, afgreitt í rúllum. Á hverri rúllu eru 30 m, og þau fást í teim breiddum – 40 mm og 80 mm. Vegna lítils þunga (rúllan er 3 kg) og utanmála eru rúllurnar auðveldar í flutningi og meðhöndlun, ekki er þörf á lyftibúnaði. Auðvelt er að rúlla þeim út og klippa viðeigandi lengdir af þeim, sem dregur úr sóun.
Ekki er krafist notkunar styrkinga við uppsetningu einingaveggja og -lofta, en mælt er engu að síður með því. Murfor® Compact-A styrktarnet er notað til að draga úr hættu á sprungumyndun í bauroc-einingaveggjum. Að jafnaði er ekki þörf á styrkingu í veggjum án burðar, sem eru styttri en 3 m. Við uppsetningu bauroc-einingaveggja er mælt með að koma fyrir styrkingu í fyrstu (neðstu) fúgu, síðan hverja fjórðu fúgu, og efstu fúgu á hverri hæð, eins og sýnt er á mynd 1.

Figur 1
Styrktarnetinu er komið fyrir með því að rúlla því út, beint á hreinsað yfirborð eininganna. Nota skal eina eða tvær raðir Murfor Compact-A styrktarnets, hlið við hlið, allt eftir breidd eininga.
| Breidd einingas | Gerð styrktarnets og fjöldi í fúgu | Ætluð notkun m/m2 |
| 500 | 2 x Compact A-40 | 2,86 |
| 375 | 2 x Compact A-40 | 2,86 |
| 300 | 2 x Compact A-40 | 2,86 |
| 250 | 2 x Compact A-40 | 2,86 |
| 200 | 1 x Compact A-80 | 1,43 |
| 150 | 1 x Compact A-40 | 1,43 |
| 100 | 1 x Compact A-40 | 1,43 |
Þegar Murfor® Compact-A styrktarnet eru sett saman, skal alls ekki leggja annað ofan á hitt ! Klippið þverbönd frá allt að 25 frá enda og víxlleggið langbönd á því svæði, þannig að þykkt styrktarnetsins aukist ekki á samsetningarsvæðinu.
.

Önnur aðferð er að leggja 25 cm langa sérsniðna „tönn“ á samsetninguna eins og sýnt er á myndinni.

Séu tvö samsíða net í fúgunni, skulu vera a.m.k. 50 cm á milli samsetninga.


Samsetningar í mismunandi fúgum skal ekki staðsetja beint fyrir ofan hverja aðra.


bauroc 200mm+Murfor 80mm

bauroc 250mm+Murfor 2x40mm

bauroc 500 mm+Murfor 2x40mm
Murfor EFS/Z er fúgustyrking gerð úr galvaníseruðu stáli, tilbúin til notkunar. Þessi styrking er ætluð til styrkingar í þunnri límfúgu. Skörun við samsetningu er 250 mm.

Mál Murfor EFS/Z styrkingar (mm)
| Gerð | Lengd | Notkunarsvið, einingaþykkt, mm | |||
| Murfor 40 | 3050 | 40 | 8 x 1,5 | 1,5 | 100 |
| Murfor 90 | 3050 | 90 | 8 x 1,5 | 1,5 | 150, 200 500 (2 samsíða styrkingar) |
| Murfor 140 | 3050 | 140 | 8 x 1,5 | 1,5 | 250 |
| Murfor 190 | 3050 | 190 | 8 x 1,5 | 1,5 | 300, 375 |
Meðalnotkun Murfor styrkinga 0,5 stk. á 1 m² tilbúins veggjar.
Við styrkingar bauroc vegghorna er mælt með notkun Murfor EFS/Z styrktarvinkla. Murfor styrktarvinkill er þunnt galvaníserað styrktarjárn, beygt í 90°horn. Ytri mál eru 500x500x1,5 mm.

