bauroc LÍMSLEÐI er ætlaður til að dreifa bauroc FRAUÐSTEYPULÍMI á einingarnar við hleðslu. Sleðinn skilar límlagi í jafnri þykkt sem tryggir að fúgur verða einsleitar og jafnar. 375 mm og 500 mm breiðir sleðar geta dreift líminu í tveim rákum, með loftrými á milli sem gefur fúgunni aukna varameinangrun. bauroc LÍMSLEÐI er afar handhægur við hleðslu langra, beinna veggja. Límsleðar fást fyrir allar einingabreiddir á bilinu 150-500 mm.
Límspaði
bauroc LÍMSPAÐI kemur að miklu gagni þegar hlaða skal flókna, stutta veggi. Límspaðar fást í eftirfarandi breiddum: 50 mm, 100 mm, 150 mm og 200 mm.
bauroc Þjöl er ætluð til slípunar á hörðnuðu einingalími, og til að slétta ójöfnur af veggyfirborði.
Vinkill er ómissandi við handsögun eininga.
Ætlaðar til sögunar á bauroc einingum á byggingarstað. Bandsagir fást í tveim gerðum, MBS 650 hefur sögunarhæð 650 mm, og MBS 510 hefur sögunarhæð 510 mm.
bauroc FRÆSIR er tæki, ætlað til að fræsa spor í veggi fyrir styrkingar, lagnir eða rör.
Ætlaður til að bora göt fyrir rafmagnstengla og -rofa. Einnig notaður til að bora göt fyrir vatns- og loftræsirör.
Fæst í eftirfarandi þvermálum: 80 mm og 120 mm.
bauroc SLÍPIBRETTI er notað til að slétta ójöfnur á yfirborði veggeininga við hleðslu, og yfirborð fyrir lokameðferð.